top of page

Fréttir

Fylgist með nýjustu fréttum, æfingum og útköllum leitarhundanna okkar hjá Leitarhundum SL. Við deilum reglulega uppfærslum um starfið okkar.

22. Júlí 2026

F2 Útkall Leit af stúlku á Akureyri

Í dag fengum við F2 Útkall leit af stúlku á Akureyri þar fóru þrír hundar frá okkur í leitina og stóðu sig vel í þeim verkefnum sem teymin fengu en stúlkan fannst heil á húfi.

18. Júlí 2026

F2 Útkall Leit á kirkjubæjaklaustri

Í dag fengum við F2 Útkall leit af einstaklingi á kirkjubæjarklaustri ekki var lagður af stað hundur frá okkur þegar að afturköllunin kom þar sem maðurinn var fundinn.

07. júní 2026

Leitarhundar  30 Ára æfmælis kaffi

Í tilefni þess að Leitarhundar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar fagnaði 30 ára afmæli þann 19. maí s.l. langar okkur að bjóða félögum okkar í Landsbjörgu að koma og fagna með okkur.

 Bjōrgunarsveitahús Týs, Svalbarðseyrarvegur 6,

Svalbarðseyri 14 júní Kl. 13:00

Boðið verður upp á kaffi, kökur og notalegt spjall.

Leitarhundar og félagsmenn verða á staðnum og hlökkum við til að eiga skemmtilega stund með góðum gestum.

Untitled design (2).png

19. Maí 2026

Leitarhundar  30 Ára

​Í dag eru 30 ár síðan Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru stofnair 19.maí 1996

Leitarhundar í 30 Ár.png
F1 Útkall Rauður Snjóflóð

28.Mars 2026

28.mars um klukkan þrjú var​ tilkynnt um snjóflóð í kringum Skeggjabrekkudal þar sem var talið að einn til tveir væru undir þá voru fimm hundar frá leitarhundum að gera sig tilbuin eða að leggja af stað þegar það kom í ljós að allir væru heilir á húfi og þar á leiti eingin undir flóðinu en snöggt viðbragð skiptir öllum málum í svona aðstæðum 

bottom of page